4. nóvember 2022

Kynningarfundur á alútboði hjúkrunarheimilis í Hveragerði

FSRE boðar til kynningarfundar um lokað alútboð byggingar 22 rýma hjúkrunarheimilis í Hveragerðisbæ. 

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE), Heilbrigðisráðuneytið og Hveragerðisbær, hefur auglýst eftir umsóknum byggingaraðila (aðalverktökum) um þátttökurétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og byggingu 22 rýma hjúkrunarheimilis andspænis núverandi dvalar- og hjúkrunarheimilinu ÁS við Hverahlíð 19 í Hveragerði. Um að ræða forval, þar sem aðilar verða valdir með tilliti til hæfi og reynslu. Leitað er að aðilum, sem geta tekið að sér að hanna og byggja 22 rýma hjúkrunarheimili fyrir fasta fjárhæð samkvæmt alútboðsaðferð. Áætluð húsrýmisþörf er 1.430 m2 (BR).

Staður: Hótel Örk

Stund: 9. nóvember kl. 15.00 og verður klukkustund.

Á fundinum mun Hildur Georgsdóttir, aðallögfræðingur FSRE, kynna alútboðsformið og Ólafur Daníelsson deildarstjóri sérhæfðs húsnæðis hjá FSRE kynna verkefnið. Að því loknu verður opnað fyrir spurningar úr sal. Kaffiveitingar verða á boðstólum.
Útboðsauglýsing

Skráning á fundinn er hér fyrir neðan. 

Skráning


Fréttalisti