19. júlí 2023

Aðstaða fyrir ferðafólk á Geysi bætt í haust

FSRE leitar tilboða í verkefnið Geysir, innviðir innan girðingar - 1. Verkáfangi; göngustígar og pallar.

Verkið er fyrsti áfangi í talsverðum endurbótum á aðstöðu ferðafólks á hverasvæðinu. Þessi fyrsti áfangi af þremur felst í lagningu göngustíga frá væntanlegum nýjum inngangi inn á Geysissvæðið, um fjölbreytt hverasvæði að Strokki.

Þaðan munu stígarnir leiða ferðafólk áfram upp að hverunum Blesa og Konungshver. Tengist göngustígur að síðustu stígum og pöllum í Laugarfelli ofan girðingar.

Verkþættir eru meðal annars: Jarðvegsskipti, mótun lands, yfirborðsfrágangur stíga og palla með möl, steinlögn og með svífandi trefjagrindum, ásamt trépöllum og handriðum.

Fyrirspurnartíma lýkur 25. júlí 2023, Frestur til að skila inn rafrænum tilboðum er til kl. 10.00 10. ágúst. Framkvæmdatíma lýkur 31. maí 2024.

Frekari upplýsingar má finna hér


Fréttalisti