2. nóvember 2022

VA arkitektar hanna stækkun og endurbætur Litla-Hrauns

Niðurstaða er fengin í samkeppni um hönnun endurbóta og stækkunar aðstöðu fangelsisins Litla-Hrauns á Eyrarbakka. 

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) fóru með verkefnið í nýstárlegan farveg, þar sem leitað var eftir skissutillögum frá hönnuðum. VA arkitektar hafa í kjölfarið verið valin til að útfæra nauðsynlegar breytingar og stækkun aðstöðu.

Verkefnið á Litla-Hrauni er óvenju flókið uppbyggingar- og endurbótaverkefni. Um er að ræða svæði með 10 byggingum þar sem elstu byggingarnar eru frá 1920 en sú nýjasta, skrifstofuhús fangelsisins var tekin í notkun fyrir aldarfjórðungi. Það flækir málin enn að fangelsið verður í fullri notkun á framkvæmdatímanum.

Endurbætur nú koma í kjölfar alvarlegra athugasemda alþjóðlegrar nefndar gegn pyndingum og van­v­irðandi meðferðar á föng­um. Nánast ómögulegt er að koma í veg fyrir að fíkniefni berist inn í fangelsið og enn erfiðara að koma í veg fyrir dreifingu þeirra innan þess. Aðstaða heilbrigðisstarfsfólks er með öllu ófullnægjandi og kemur í veg fyrir nauðsynlegt samstarf fangelsis- og heilbrigðisyfirvalda. Þá hefur Vinnueftirlitið gert athugasemdir við vinnuaðstöðu jafnt fanga og varða þeirra.

VA arkitektar eru valdir til verkefnisins að loknu ítarlegu ferli. Auglýst var eftir þátttakendum í lokað útboðsferli. Fjórir aðilar tóku þátt í ferlinu sem fólst í vettvangsferðum, fyrirlestrum og kynningum um starfsemi fangelsa, viðtölum við starfsfólk og sérfræðinga og endaði í skissuferli þar sem hver og einn þátttakandi setti fram sínar hugmyndir að lausnum. Á grundvelli tillagna voru svo VA arkitektar valdir.

Breytingarnar sem VA arkitektar munu teikna felast í að nútímavæða fangelsið. Gert er ráð fyrir að þeim verður skipt upp í þrjá afanga; í þeim fyrsta yrði byggt nýtt þjónusthús, varðstofu ásamt tengingum við álmur fangelsisins, nýtt hlið og tengingu fyrir lögreglu. 

Tilgátumynd: Svona sjá hönnuðir fangelsissvæðið fyrir sér að loknum framkvæmdum.

ÍÍ öðrum áfanga verðar gerðar breytingar á húsi 2, kennslusali og skrifstofur og þá verði eldhús matasalur og starfsmannaaðstaða færð ásamt innri og ytri breytingum í húsunum..

Lokaáfanginn felst svo í byggingu nýs fjölnotasalar og uppbyggingu útisvæðis ásamt því að girðingar verða færðar og fjósið rifið.

Gert er ráð fyrir að byggðir verði 1.300 – 1400 fermetrar nýs húsnæðis í verkefninu og 2.000 fermetrar eldra húsnæðis endurgerðir í verkefninu.

Unnið er að samningagerð við hönnuði. Þá hefur farið fram forval á verktökum fyrir verkefnið og gert ráð fyrir að vali á þeim ljúki í lok nóvembermánaðar.

Tilgátumynd: Hér gefur að líta þær viðbyggingar sem byggðar verða, appelsínugular.


Fréttalisti