Tilkynning um val á tilboði – Hellur og lagnir ehf
Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir tilkynnir hér með að tilboði Hellur og lagna ehf., kt. 5908972059, hefur verið tekið í tengslum við útboð á hellulögnum og lagnaframkvæmdum.
Það tilkynnist hér með að tilboð 5908972059, Hellur og lagnir ehf. hefur verið valið og tekið enda tilboðið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar og er því kominn á bindandi samningur milli aðila. Hellur og lagnir ehf. buðu 105.234.100 kr. og þar með lægsta heildartilboðsverðið.
Í XI. kafla laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 106 gr.: Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kröfu um óvirkni samnings er þó heimilt að bera undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Þó verður krafa um óvirkni samnings ekki höfð uppi þegar sex mánuðir eru liðnir frá gerð hans. Nánari ákvæði um fresti eru í 106. gr. Fyrir hverja kæru skal kærandi greiða kærugjald að fjárhæð 210.000 kr.
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir þakka fyrir þátttökuna