21. júní 2022

FSRE leitar að allt að 20 þúsund fermetrum skrifstofuhúsnæðis

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir hefur auglýst markaðskönnun þar sem leitað er að allt að 20 þúsundum fermetra skifstofuhúsnæðis til leigu fyrir ýmsar stofnanir ríkisins. Húsnæðið þarf að vera miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og liggja vel við helstu samgönguæðum.

Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE) hefur í hyggju að taka á leigu 8.000-20.000 fermetra nútímalegt og sveigjanlegt skrifstofuhúsnæði sem áformað er að nýta undir ýmsar stofnanir ríkisins. Um markaðskönnun er að ræða og felur hún ekki í sér loforð um viðskipti.

Miðað er við að taka á leigu húsnæði sem er tilbúið til notkunar innan 12-18 mánaða frá undirritun leigusamnings. Til greina kemur að afhenda að lágmarki 4.000 fermetra innan 12 mánaða og afganginn samkvæmt samkomulagi.

Gert er ráð fyrir að leigutími verði 15-25 ár auk mögulegrar framlengingar.

Gerð er krafa um staðsetningu miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu, í nálægð við stofnbrautir, almenningssamgöngur og aðra skrifstofu- og þjónustustarfsemi.

Frekari upplýsingar er að finna í skjali sem hér má finna  og hér er staðlað sniðmát fyrir innsendendur .

Fyrirspurnir varðandi markaðskönnun þessa skulu berast á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is. Fyrirspurnarfrestur rennur út 15. júlí nk. Fyrirspurnir verða birtar og svarað á www.fsre.is.

Þeir aðilar sem hafa áhuga á að taka þátt í markaðskönnun þessari og skila inn umbeðnum gögnum skulu senda tölvupóst þess efnis á leiguhusnaedi@fsre.is eigi síðar en 2. ágúst nk.


Fréttalisti