19. október 2021

FSR fær viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA

Gott veganesti inn í sameiningarvinnu FSR og Ríkiseigna.

Jafnvægisvogin, hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA), hélt í liðinni viku stafrænu ráðstefnuna Jafnrétti er ákvörðun. Þar kynnti Eliza Reid viðurkenningarhafa Jafnvægisvogarinnar, en það eru þeir þátttakendur sem hafa náð að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar. Á ráðstefnu Jafnvægisvogarinnar árið 2020 voru viðurkenningarhafar 45 talsins en í ár voru þeir samtals 53.

Að þessu sinni hlaut FSR viðurkenningu og er því í hópi 8 ríkisaðila sem hlotnaðist þessi heiður.

Starfsfólk FSR er stolt af þessari viðurkenningu og tekur hana sem veganesti inn í sameiningarvinnu sem nú stendur yfir hjá Framkvæmdasýslunni og Ríkiseignum.

Þrjátíu og átta fyrirtæki, sjö sveitarfélög og átta opinberir aðilar hljóta viðurkenningu

Verðlaunahafar Jafnvægisvogarinnar2021. (Mynd af vefsíðu FKA/Silla Páls)

Jafnvægisvogin veitti viðurkenningar til þrjátíu og átta fyrirtækja, sjö sveitarfélaga og átta opinberra aðila úr hópi þeirra 152 þátttakenda sem hafa undirritað viljayfirlýsingu og tóku þátt í könnun um aðgerðir sem gripið var til. Markmið Jafnvægisvogar um 40/60 kynjahlutfall í efsta stjórnendalagi var haft til hliðsjónar við matið. Stór hluti þeirra þátttakenda sem skrifuðu undir viljayfirlýsingu Jafnvægisvogarinnar haustið 2020 hafa náð góðum árangri á þessu sviði og fjölgaði þeim fyrirtækjum sem hafa náð markmiðunum um 8 á milli ára. Auk þess vekja þátttakendur í Jafnvægisvoginni athygli á jafnréttismálum innan sinna fyrirtækja með ýmsum öðrum hætti.

Að hreyfiaflsverkefninu standa auk FKA, forsætisráðuneytið, Sjóvá, Deloitte, Pipar\TBWA og Ríkisútvarpið.


Fréttalisti