29. mars 2023

Byggt að nýju yfir rústir Stangar í Þjórsárdal

Útboð framkvæmda við bæjarrústir Stangar í Þjórsárdal auglýstar. 

Auglýsing um útboð framkvæmda við bæjarrústir Stangar í Þjórsárdal birtist á vef FSRE og á Útboðsvef Ríkiskaupa í vikunni.

SP(R)INT Studio hefur hannað nýja yfirbyggingu yfir bæjarrústirnar og er vonast til að framkvæmdir geti farið af stað í sumar.

Yfirbygging sem reist var yfir rústirnar hefur látið verulega á sjá og því  tímabært að færa aðstöðuna við rústirnar í nútímahorf. Að framkvæmdum loknum verður aðstaða á þessum vinsæla ferðamannstað eins og best verður á kosið.

Hér gefur að líta þrívíddarmyndir af verkefninu:

Mynd: SP(R)INT STUDIO.

Mynd:SP(R)INT STUDIO


Fréttalisti