Sviðsstjóri byggingasviðs
Ríkiseignir óska eftir að ráða drífandi og framsýnan leiðtoga í starf sviðsstjóra byggingasviðs. Á sviðinu starfa tólf starfsmenn en hlutverk þess er að meta ástand fasteigna með tilliti til viðhaldsþarfa, nauðsynlegra endurbóta og aðlögun að breyttri starfsemi. Sviðsstjóri ber ábyrgð á stjórnun og daglegum rekstri sviðsins ásamt framþróun verkefna. Sviðsstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra og er hluti af stjórnendateymi stofnunarinnar
Ríkiseignir óska eftir að ráða drífandi og framsýnan leiðtoga í starf sviðsstjóra byggingasviðs. Á sviðinu starfa tólf starfsmenn en hlutverk þess er að meta ástand fasteigna með tilliti til viðhaldsþarfa, nauðsynlegra endurbóta og aðlögun að breyttri starfsemi. Sviðsstjóri ber ábyrgð á stjórnun og daglegum rekstri sviðsins ásamt framþróun verkefna. Sviðsstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra og er hluti af stjórnendateymi stofnunarinnar. Sjá auglýsingu.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og mannauðsmálum sviðsins
- Yfirumsjón með viðhalds-, breytinga- og endurbótaverkefnum
- Yfirumsjón með gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlana
- Yfirsýn yfir verkefnastöðu og eftirfylgni með markmiðum
- Tryggja samræmt verklag sviðsins • Leiðandi í umbótum, stefnumótun og markmiðasetningu
- Ábyrgð á innkaupum og að þau séu samkvæmt settum lögum og reglum
- Stendur skil á rekstrarniðurstöðum og uppgjöri sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf í verk-, tækni-, byggingafræði eða sambærileg menntun. Framhaldsmenntun er kostur
- Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af mannauðsmálum og geta til að byggja upp öflugt teymi
- Reynsla af stjórnun verklegra framkvæmda
- Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð
- Reynsla af straumlínustjórnun er kostur
- Góð þekking á öryggis-, heilsu- og umhverfismálum
- Góð þekking á lögum og reglum er varða byggingarmál
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Góð tölvukunnátta, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.