Niðurstöður dómnefndar kynntar á morgun vegna hönnunarsamkeppni um hjúkrunarheimili í Sveitarfélaginu Árborg
Hvar: Fjölbrautaskóla Suðurlands, Tryggvagötu 25, Selfossi
Hvenær: Þriðjudaginn 24. október 2017 kl. 15:00
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd velferðarráðuneytis og Sveitarfélagsins Árborgar, bauð til opinnar hönnunarsamkeppni um nýbyggingu hjúkrunarheimilis í Sveitarfélaginu Árborg í maí síðastliðnum í samvinnu við Arkitektafélag Íslands. Um er að ræða 50 hjúkrunarrými á lóð Heilbrigðisstofnunar Suðurlands við Árveg á Selfossi. Nýbyggingin má vera að hámarki 3.250 m².
Í samkeppnislýsingu er gert ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í ágúst 2018, framkvæmdir hefjist í október 2018 og þeim verði lokið vorið 2020.
Dómnefnd hefur lokið störfum en alls bárust 17 tillögur. Niðurstöður dómnefndar verða kynntar á morgun, þriðjudaginn 24. október, í Fjölbrautaskóla Suðurlands kl. 15:00.
Í sal (Oddi, aðalbygging):
- Opnunarávarp: Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar
- Kynning á niðurstöðu dómnefndar: Bryndís Þorvaldsdóttir, formaður dómnefndar og sérfræðingur hjá velferðarráðuneytinu
- Lokaávarp: Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra
Á nemendatorgi Fjölbrautaskóla Suðurlands (Hamar, verknámshús):
- Tillögur til sýnis: Alls bárust 17 tillögur og verða þær allar til sýnis.
- Boðið verður upp á kaffi á nemendatorginu.
Velferðarráðuneytið
Sveitarfélagið Árborg