Geðheilsuteymi HSU - Leiguhúsnæði - UPPFÆRT
UPPFÆRT:
Húslýsing - Geðheilsuteymi HSU
Húsrýmistafla - Geðheilsuteymi HSU
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi geðheilsuteymi HSU á Selfossi
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til allt að 5 ára, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um þegar byggt húsnæði, æskilegt er að rými verði á einni hæð. Húsnæðið skal vera staðsett á Selfossi innan ramma sem markaður er í fylgiskjali 3. Kostur ef húsnæðið er staðsett í nálægð við aðra þjónustustarfsemi. Aðgengi skal vera gott þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði.
Húsrýmisþörf er áætluð um 250-300 fermetrar.
Að markaðskönnun lokinni verður tekin ákvörðun um hvort auglýst verður eftir húsnæði eða hvort gengið verði til samninga um leigu á húsnæði á grundvelli þessarar markaðskönnunar.
Afhendingartími húsnæðis er innan 6-12 mánaða frá undirritun leigusamnings eða fyrr.
Aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is laugardaginn 31. maí 2025.
Frekari gögn má nálgast hér:
Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.
Fyrirspurnir varðandi verkefnið Geðheilsuteymi HSU, skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 18. júní 2025 en svarfrestur er til og með 20. júní 2025.
Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 þriðjudaginn 30. júní 2025.
Merkja skal tilboðið; nr. 6335035 – Geðheilsuteymi HSU – Leigu-húsnæði
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr.
Útboðsnúmer: 6335035
Fyrirspurnarfrestur: 18.6.2025
Opnun tilboða: 30.6.2025