Bygging 831, Keflavíkurflugvelli - breytingar og ný þvottastöð fyrir flugvélar
- Verkefnisnúmer: 606 1034
- Verkefnastjóri: Sigurður Norðdahl
Um verkefnið
Bygging nr. 831 er flugskýli með verkstæðum, skrifstofum, rafstöðvarrými, tæknirýmum, göngum, salernum og geymslum á tveimur hæðum í sambyggðum hliðarbyggingum við flugskýlið og er samtals um 12.200 fermetrar. Byggingin var þó nokkuð endurnýjuð á árunum 1999–2000 á vegum Bandaríkjahers. Landhelgisgæslan á Keflavíkurflugvelli hefur umsjón með notkun og rekstri byggingarinnar. Á vegum Landhelgisgæslunnar voru gerðar rafkerfisbreytingar á hluta byggingarinnar sem framkvæmdar voru 2014–2015.
Þær breytingar sem um ræðir í þessu verkefni eru fjármagnaðar af Bandaríkjaher. Ekki er ljóst hvar verkefnið er statt en gera má ráð fyrir að það sé í undirbúningshönnun í Norfolk. Þegar verkið verður boðið út hér á landi er ekki ólíklegt að um verði að ræða alútboð þar sem bjóðendur sjái um að ljúka hönnuninni og framkvæmdinni.