FSRE

Valmynd


  • Byggingar
  • Jarðir og auðlindir
  • Verkefni í þróun
  • VÖR

Snjóflóðavarnir Siglufirði, stoðvirki 3. áfangi

  • Verkkaupi: Stofnanir
  • Staða: Framkvæmd lokið
  • Verkefnisnúmer: 633 1724
  • Verkefnastjóri: Guðmundur Pálsson við frumathugun og Sigurður Hlöðversson við verkframkvæmd
  • Tímaáætlun: Verkinu lauk haustið 2018
  • Siglufj.3.-afangi
  • 3. áfangi stoðvirkja
  • Stoðvirki á Siglufirði, 3. áfangi
  • Stoðvirki á Siglufirði, 3. áfangi

Um verkefnið

Framkvæmdum er lokið við verkefnið Snjóflóðavarnir Siglufirði, 3. áfangi stoðvirkja í Hafnarfjalli ofan byggðar á Siglufirði. Verkefnið náði til stoðvirkja í N-Fífladölum þar sem þörf fyrir snjóflóðavarnir með stoðvirkjum er nú brýnust. Verkkaupi er Fjallabyggð.
Verktaki var Köfunarþjónustan ehf.
Verkkaupi var Fjallabyggð.
Verkið er fjármagnað af ofanflóðasjóði og Fjallabyggð í hlutföllunum 90/10%. Framkvæmdasýsla ríkisins, FSR, hafði umsjón með verkefninu fyrir hönd verkkaupa á stigi frumathugunar, áætlunargerðar, verklegrar framkvæmdar og skilamats. 

Frumathugun 

Undirbúningsvinna og framkvæmdir vegna snjóflóðavarna á Siglufirði byggist á lögum um varnir gegn snjóflóðum og reglugerð um hættumat. Á Siglufirði er snjóflóðahættan víðtæk og framkvæmdirnar eru byggðar upp með varnargörðum og stoðvirkum á hættusvæðum ofan við byggðina, hvort tveggja í nokkrum áföngum. Reistir voru leiðigarðar við Strengsgil á árunum 1998 til 2000 og stefnt er að áframhaldandi gerð varnargarða. Á þeim svæðum þar sem landhalli er mikill og rými fyrir varnargarða takmarkaður eru reist stoðvirki. 

Frumathugun vegna stoðvirkjanna var gerð árið 2001. Hún var unnin af Stefan Margreth hjá rannsóknarstofnun snjóflóða í Sviss, The Swiss Federal Institute for Snow and Avalanche Research, í samráði við Veðurstofu Íslands. 

Niðurstaða frumathugunar var tillaga að miklum upptakastoðvirkjum sem gert var ráð fyrir að reisa í heild í áföngum á árunum 2001 til 2010. Línuhönnun hf. vann mat á umhverfisáhrifum vegna stoðvirkjanna og hættumat var staðfest 23. mars 2002. Fyrsti áfangi stoðvirkjanna, það er við Gróuskarðshnúk, var framkvæmdur á árunum 2003 til 2004, annar áfangi nyrst á svæðinu í Norður-Fífladölum og Hafnarhyrnu/Gimbraklettum var unninn á árunum 2013-2015. Samkvæmt frumathugun er þörf fyrir snjóflóðavarnir á svæðum í Fífladölum og einnig er nokkur áhætta á fleiri svæðum neðan Fífladala, á svæðum við Hafnarhyrnu/ Gimbrakletta. Í Hvanneyrarskál er áhættan talin minni en á fyrrnefndum svæðum. 

Áætlunargerð

Hönnun bráðabirgðavegs var unnin fyrir útboð sumarið 2012. Bráðabirgðavegurinn liggur um bratta skriðu og er einungis ætlaður fyrir umferð beltatækja og stuttra fjórhjóladrifinna bíla eða tækja og verður notaður meðan unnið er að uppsetningu á stoðvirkum. Lengdarhalli, beygjuradíusar og bratti á fyllingum og skeringum fylgir ekki almennum kröfum sem gerðar eru til varanlegra vega. Gert er ráð fyrir að í lok uppsetningar á stoðvirkjum verði leitast við að afmá veginn og gróðursár verði grædd. Hönnun vegarins er unnin af Verkfræðistofu Norðurlands ehf.

Útboðsgögn vegna efnisútboðs voru gerð og var útboðið auglýst í desember 2012. Nær það til framleiðsluhönnunar, framleiðslu og afhendingar stoðgrinda. Unnin voru síðan útboðsgögn vegna uppsetningar stoðvirkjanna.

Verkleg framkvæmd

Samið var við efnissala um framleiðslu á efni í samræmi við ákvæði í fyrra útboði. Útboð á uppsetningu stoðvirkjanna var auglýst 4. apríl 2015. Verkið fól í sér að setja upp stoðvirki úr stáli, (e. snow bridges), einnig kallaðar stálgrindur eða grindur, á upptakasvæðum snjóflóða til snjóflóðavarna í Norður-Fífladölum ofan byggðar á Siglufirði. Þetta var þriðji áfangi framkvæmda við uppsetningu stoðvirkja á Siglufirði.  Alls um 2.190 metrar. Hæð stoðvirkja er frá 3,5–5 m. Uppsetning stoðvirkjanna er í samræmi við reglur svissnesku snjóflóðarannsóknastofnunarinnar (WSL) ásamt séríslenskum viðbótarreglum við þær. Verkið var unnið á fjórum sumrum, það er 2015 til 2018. Framkvæmdir gengu vel og áfallalaust.


Aðalvalmynd

  • ÚKRAÍNA
  • Leiguþjónusta
    • Viðhald aðstöðu
    • Breytingar á aðstöðu
    • Deigla
    • Þjónusta leigusala
  • Eignasafn og þróun
    • Byggingar
    • Jarðir og auðlindir
    • Verkefni í þróun
    • VÖR
  • Útboð og sala
    • Auglýsingar
    • Örútboð
    • Opnun tilboða
    • Niðurstöður útboða
    • Sala og leiga
    • Samkeppnir
    • Kaup á leigulóð
  • Um okkur
    • Hlutverk
    • Skipurit
    • Fréttalisti
    • Starfsfólk
    • Reikningar
    • Gjaldskrá
    • Lög og reglugerðir
    • Viðmið
    • Útgefið efni
  • English

Leita á vefnum


FSRE

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir

Borgartúni 26, 105 Reykjavík
Kt.: 510391-2259

Afgreiðslutímar

  • Mánudaga - fimmtudaga 9:00 - 15:00
  • Föstudaga 9:00 - 14:00

Hafa samband

590 9700
fsre@fsre.is

  • Starfsfólk
  • Laus störf
  • Gjaldskrá