Heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSU) á Selfossi - Leiguhúsnæði

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir heimavist fyrir Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á skammtímaleigu til 4 ára, fullbúið til notkunar, með lausum búnaði. Leigutími er frá 15. ágúst til 15. maí ár hvert. Gerð er krafa um staðsetningu á Selfossi eða nágrenni.

Heildarhúsrýmisþörf er áætluð 350 - 600 fermetrar. Gert er ráð fyrir 15-20 herbergjum með snyrtingum ásamt sturtu eða aðgengi að sameiginlegum snyrtingum með sturtu og matsal/-félagsrými.

Húsrýmisþörf fyrir hvert herbergi er um 12-20 fermetra.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Heimavist fyrir Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi, skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 7. desember 2023 en svarfrestur er til og með 11. desember, 2023.

Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 miðvikudaginn 20.desember 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 6027515 – Heimavist fyrir Fjölbrautarskóla Suðurlands á Selfossi – Leiguhúsnæði

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11.

 

Útboðsnúmer: 6027515

Fyrirspurnarfrestur: 7.12.2023

Opnun tilboða: 20.12.2023