MARKAÐSKÖNNUN - Skrifstofuhúsnæði fyrir ríkisstofnanir í Vestmannaeyjum

230813 Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir nokkrar ríkisstofnanir í Vestmannaeyjum.

Miðað er við að húsnæðið verði tekið á leigu í allt að 10 ár með möguleika á framlengingu. Gerð er krafa um staðsetningu húsnæðis miðsvæðis í Vestmannaeyjum.

Húsnæðið skal afhendast fullbúið og tilbúið til notkunar eins fljótt og kostur er.

Heildarstærð húsnæðis, brúttó, er áætluð 250 – 500 fermetrar. Nánar um aðrar kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar á www.utbodsvefur.is þriðjudaginn 22. ágúst 2023.

Gott aðgengi skal vera fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærðar húsnæðis og skipulags þess út frá fyrirhugaðri nýtingu, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.

Fyrirspurnir varðandi verkefnið Skrifstofuhúsnæði fyrir ríkisstofnanir í Vestmannaeyjum, skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is.

Fyrirspurnarfrestur rennur út 25. ágúst 2023 en svarfrestur er til og með 29. ágúst 2023.

Leigutilboð skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is, eigi síðar en kl. 13:00 miðvikudaginn 13. september 2023.

Merkja skal tilboðin; nr. 230813 – Skrifstofuhúsnæði fyrir ríkisstofnanir í Vestmannaeyjum – Leiguhúsnæði

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.

Útboðsnúmer: 230813

Fyrirspurnarfrestur: 29.08.2023

Opnun tilboða: 13.9.2023