Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) – LEIGUHÚSNÆÐI

221127 – Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði fyrir starfsemi Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) . Miðað er við 5 ára leigutíma, húsnæði fullbúið til notkunar án lauss búnaðar. Gerð er krafa um staðsetningu á höfuðborgarsvæðinu. Það skal vera gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði.

Húsrýmisþörf er áætluð 800-850 fermetrar.

Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla urðu aðgengilegar á www.utbodsvefur.is mánudaginn, 28. nóvember 2022.

Við mat á hagkvæmni tilboða verður m.a. tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og skipulags þess út frá starfsemi HTÍ, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu, aðkomu og bílastæðum.

Fyrirspurnir varðandi verkefni Heyrnar- og talmeinastöð - leiguhúsnæði skulu sendar á netfangið leiguhusnaedi@fsre.is .

Fyrirspurnarfrestur rennur út föstudaginn 2. desember en svarfrestur er til og með þriðjudags 6. desember.

Leigutilboðum skal senda á leiguhusnaedi@fsre.is eigi síðar en kl. 13:00, mánudaginn 12. desember.

Merkja skal tilboðin; nr. 221127 – Heyrnar- og talmeinastöð Íslands – Leiguhúsnæði

Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1. mgr. 11. gr.

Útboðsnúmer: 221127

Fyrirspurnarfrestur: 2.12.2022

Opnun tilboða: 12.12.2022