Örútboð 287 - Tröllaskagi - Dalvík, Ólafsfjörður og Siglufjörður Þjónustusamningur - aðalverktaka
Örútboð nr. 287 innan rammasamnings 21201 – þjónusta iðnmeistara
Númer: 287
ÚTBOÐ: Tröllaskagi - Dalvík, Ólafsfjörður og Siglufjörður
Ríkiseignir óska eftir aðalverktökum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald á fasteignum á Tröllaskaga. Verkefnið felst í almennu viðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Þær iðngreinar sem útboðið nær yfir eru trésmíði, rafvirkjun, pípulagnir og málun.
| Fasteign: | Staður: | Notkun: |
| Gunnarsbraut 6 | Dalvík | Lögreglustöð |
| Gunnarsbraut 4 | Dalvík | Sjúkrabílageymsla |
| Hólavegur 6 | Dalvík | Heilsugæslustöð |
| Öldugata 1 | Dalvík | Íbúð |
| Hornbrekka | Ólafsfjörður | Heilsugæsla/hjúkrunarheimili |
| Ægisbyggð 8 | Ólafsfjörður | Íbúð |
| Gránugata 4-6 | Siglufjörður | Lögreglustöð/sýslumaður |
| Túngata 3 | Siglufjörður | Ríkisskattstjóri/Skatturinn |
| Hvanneyrarbraut 37-39 | Siglufjörður | Sjúkrahús/heilsugæsla |
| Hvanneyrarbraut 58 | Siglufjörður | Fjölbýli (2 íbúðir) |
| Ártún 1 | Siglufjörður | Íbúð |
Gefa skal verð í tímagjald í dagvinnu og yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstursferðir vegna efnisöflunar og útkalla. Áætlaður fjöldi tíma og akstursferða á samningstímanum (2 ár) er:
| Iðngrein | DV | YV | Akstur |
| Trésmíði | 1800 | 200 | 140 |
| Rafvirkjun | 700 | 80 | 50 |
| Pípulagnir | 700 | 80 | 50 |
| Málun | 900 | 100 | 70 |
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn, 16. mars 2021 kl. 14.00.