ÚTBOÐ 255 – Menntaskólinn í Reykjavík og Kvennaskólinn í Reykjavík – þjónustusamningur um pípulagnir

Örútboð nr. 255 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Menntaskólanum í Reykjavík og Kvennaskólanum í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi pípulagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 550 tíma í dagvinnu og 60 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 40 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á netfangið utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 7. júní 2018 kl. 14.00.