ÚTBOÐ – Listasöfn á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um raflagnir

Örútboð nr. 236 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í Listasöfnum á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu viðhaldi raflagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1100 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 14. desember 2017 kl. 14.00.