ÚTBOÐ – Heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um raflagnir

Örútboð nr. 231 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu viðhaldi raflagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 700 tíma í dagvinnu og 70 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 50 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 14. nóvember 2017 kl. 14.00.