Örútboð nr. 292- Grensásvegur 9 - Endurnýjun þaks, nýr þakpappi

Örútboð nr. 292 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Númer: 292

Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna endurnýjunar þaks og lagningu nýs þakpappa við Grensásveg 9 í Reykjavík. Verkið felst í rifi á þakjárni og pappa, viðgerð á þakklæðningu ef þarf, lagningu á nýjum þakpappa sem endanlegt yfirborð, viðgerð eða endurnýjun á þakrennum, frágangi við lyftuhústurna, nýjar flasningar, frágangi við þaklúgur og þakblásara og uppsetningu á þaktúðum. Einnig skal tengja niðurfallsstofna frá þakrennum. 

Helstu magntölur eru:

Þak - rif  
Fjarlægja þakstál og pappa 1.610 m²
Fjarlægja þakstál og pappa 180 m
Niðurtekt klæðningar á lyftustokksturnum           40 m
Gaflflasningar 38 m

 

Þak - klæðning  
Asfaltpappi á þak 1.610 m²
Nýjar þakrennur og tengingar 180 m
Enduruppsetning klæðningar á lyftustokksturna 40 m
Nýjar flasningar við lyftustokksturna 40 m
Nýjar gaflveggjaflasningar 37 m
Útloftunartúður ø75 mm 180 stk

Lok framkvæmdatíma er 15. júlí 2020


Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 24. mars 2020 kl. 14.00.