Auglýsing -Ríkiseignir óska eftir að ráða tvo verkefnastjóra, annars vegar á sviði leigumála og hins vegar á sviði gæða og skjalavörslu.
Ríkiseignir óska eftir að ráða verkefnastjóra á sviði leigumála. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi verkefni. Verkefnastjóri hefur yfirumsjón með leigusamningum.
Helstu verkefni:
- Yfirumsjón með leigusamningum.
- Ákvarða leiguverð, sem ígildi markaðsleigu, út frá ástandi, gæðum og staðsetningu.
- Útfæra stofnkostnaðarleigu vegna nýfjárfestinga.
- Samningagerð.
- Forsvar gagnavart leigutökum varðandi leigumál.
- Ábyrgð á að innheimtu, bókun húsaleigu og yfirliti um nýtingu húsnæðis.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærilegt próf sem nýtist í starfi.
- Reynsla af verkefnastjórnun.
- Reynsla af fjármálagerningum er kostur.
- Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum.
- Nákvæmni í vinnubrögðum.
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
----------------------------------------------------------------------
Ríkiseignir óska eftir að ráða verkefnastjóra á sviði gæða og skjalavörslu. Um er að ræða afar fjölbreytt og krefjandi verkefni. Verkefnastjóri hefur yfirumsjón með innleiðingu, þróun og rekstri gæðakerfis ásamt skjalavörslu.
Helstu verkefni:
- Gerð og uppfærsla gæða- og starfsmannahandbóka.
- Kynning á gæðakerfi og þjálfun við innleiðingu.
- Úttekt á virkni gæðakerfis og notkun þess.
- Uppbygging skjalastjórnunarkerfis og innleiðing.
- Umsjón með móttöku, söfnun, skráningu, varðveislu og miðlun skjala.
- Önnur verkefni er lúta að öruggri umhirðu gagna, s.s. persónuverndarmál.
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla og þekking á gæðastjórnun.
- Reynsla af skjalastjórnun og rafrænum skjalvörslukerfum.
- Jákvætt viðmót og færni í mannlegum samskiptum.
- Nákvæmni í vinnubrögðum.
- Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Ríkiseignir hafa umsjón með fasteignum, jörðum og auðlindum í eigu ríkisins í umboði fjármálaráðuneytis. Hlutverk Ríkiseigna er að tryggja örugga og hagkvæma umsýslu þessara eigna. Umsýsla fasteigna felst einkum í útleigu húsnæðis til stofnana ríkisins, viðhaldi fasteigna og daglegum rekstri þeirra. Umsýsla jarðeigna felst aðallega í útleigu og ábúð á ríkisjörðum, umsjón með leigusamningum og samskiptum við leigutaka og ábúendur. Að auki annast Ríkiseignir umsýslu og skráningu auðlinda í eigu ríkisins.