Bygging 22 rýma hjúkrunarheimilis í Hveragerði - Alútboð

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE), Heilbrigðisráðuneytið og Hveragerðisbær, auglýstu nýverið eftir umsóknum byggingaraðila (aðalverktökum) um þátttökurétt í lokuðu alútboði á fullnaðarhönnun og byggingu 22 rýma hjúkrunarheimilis, andspænis núverandi dvalar- og hjúkrunarheimilinu ÁS við Hverahlíð 19 í Hveragerði. Um er að ræða forval, þar sem aðilar verða valdir með tilliti til hæfi og reynslu.

Fjórar þátttökubeiðnir bárust. Eru þær nú í skoðun hjá verkefnastjóra FSRE. Ákvörðun um hæfi þátttakenda mun liggja fyrir 13. janúar 2023.

Verknúmer: 6088216

Útboðsnúmer: 21770

Dagsetning opnunar: 12.12.2022