Ofanflóðavarnir Patreksfirði – Bráðavarnir
Undirt
Tilkynning um val og töku tilboðs
Það tilkynnist hér með að tilboð 5908972059, Hellur og lagnir ehf. hefur verið valið og tekið enda tilboðið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar og er því kominn á bindandi samningur milli aðila. Hellur og lagnir ehf. bauð heildartilboðsfjárhæð m.vsk. að fjárhæð 76.186.500 kr. og var það eina tilboðið sem barst.
Samkvæmt 85. gr. OIL eiga bjóðendur rétt á að fá rökstuðning fyrir höfnun á tilboðum sínum, sendi þeir um það skriflega beiðni (bréf eða tölvupóstur) til FSRE innan 14 daga frá því að bjóðanda var tilkynnt ákvörðun. FSRE munu svara beiðninni eigi síðar en 15 dögum eftir að hún berst.
Í XI. kafla laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 106 gr.: Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kröfu um óvirkni samnings er þó heimilt að bera undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Þó verður krafa um óvirkni samnings ekki höfð uppi þegar sex mánuðir eru liðnir frá gerð hans. Nánari ákvæði um fresti eru í 106. gr. Fyrir hverja kæru skal kærandi greiða kærugjald að fjárhæð 210.000 kr.
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir þakka fyrir þátttökuna
Verknúmer:
Útboðsnúmer: 24-0546
Dagsetning ákvörðunar: 17.9.2025