Lóðarframkvæmdir við sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum

Tilkynning um val og töku tilboðs
Það tilkynnist hér með að tilboð kt. 6212050720, Gröfuþjónustan Brinks ehf hefur verið valið og tekið enda tilboðið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar og er því kominn á bindandi samningur milli aðila. Gröfuþjónusta Brinks ehf. bauð heildartilboðsfjárhæð 59.619.577 með virðisauka.
Samkvæmt 85. gr. OIL eiga bjóðendur rétt á að fá rökstuðning fyrir höfnun á tilboðum sínum, sendi þeir um það skriflega beiðni (bréf eða tölvupóstur) til FSRE innan 14 daga frá því að bjóðanda var tilkynnt ákvörðun. FSRE munu svara beiðninni eigi síðar en 15 dögum eftir að hún berst.
Í XI. kafla laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 106 gr.: Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kröfu um óvirkni samnings er þó heimilt að bera undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Þó verður krafa um óvirkni samnings ekki höfð uppi þegar sex mánuðir eru liðnir frá gerð hans. Nánari ákvæði um fresti eru í 106. gr. Fyrir hverja kæru skal kærandi greiða kærugjald að fjárhæð 210.000 kr.
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir þakka fyrir þátttökuna 

Verknúmer:

Útboðsnúmer: 24-0033 A

Dagsetning ákvörðunar: 2.7.2025