Endurbætur fyrir Sjúkrahúsið á Akranesi

Tilkynning um höfnun tilboðs
Ágæti viðtakandi,
Að lokinni yfirferð liggur fyrir að öll tilboðin eru umfram þá kostnaðaráætlun sem lögð var til grundvallar í útboðinu. Verkaupi framkvæmdi endurmat á kostnaðaráætlun sinni en enn eru bæði tilboð hærri en nemur því fjárframlagi sem hann hefur til umráða í þessu verki.
Því hefur verið ákveðið að hafna öllum tilboðum. Það tilkynnist því hér með að tilboði þínu í ofangreindu útboði er hafnað sem óaðgengilegu skv. 82. gr. OIL þar sem það var meira en 30% hærra en kostnaðaráætlun verkkaupa.
Samkvæmt 85. gr. OIL eiga bjóðendur rétt á að fá rökstuðning fyrir höfnun á tilboðum sínum, sendi þeir um það skriflega beiðni (bréf eða tölvupóstur) til FSRE innan 14 daga frá því að bjóðanda var tilkynnt ákvörðun. FSRE munu svara beiðninni eigi síðar en 15 dögum eftir að hún berst.
Í XI. kafla laga um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) er fjallað um kærunefnd útboðsmála. Þar kemur fram í 1. mgr. 106 gr.: Kæra skal borin skriflega undir kærunefnd útboðsmála innan 20 daga frá því að kærandi vissi um eða mátti vita um þá ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem hann telur brjóta gegn réttindum sínum. Kröfu um óvirkni samnings er þó heimilt að bera undir nefndina innan 30 daga frá framangreindu tímamarki. Þó verður krafa um óvirkni samnings ekki höfð uppi þegar sex mánuðir eru liðnir frá gerð hans. Nánari ákvæði um fresti eru í 106. gr. Fyrir hverja kæru skal kærandi greiða kærugjald að fjárhæð 210.000 kr.
Í kæru skulu koma fram upplýsingar um kæranda, þann aðila sem kæra beinist að (varnaraðila) og ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi sem er kærð. Í kæru skulu koma fram kröfur kæranda ásamt stuttri lýsingu málsatvika og málsástæðna og rökstuðningur. Kröfugerð kæranda skal lúta að úrræðum nefndarinnar samkvæmt lögum þessum. Kærandi skal tilkynna kaupanda um kæru eins skjótt og mögulegt er.
Lög um opinber innkaup nr. 120/2016 (OIL) eru birt á heimasíðu Alþingis: http://www.althingi.is/lagas/nuna/2016120.html
Hér er að finna nánari upplýsingar um kærunefnd útboðsmála og frekari leiðbeiningar um kæruheimildina: https://www.stjornarradid.is/verkefni/rekstur-og-eignir-rikisins/opinber-innkaup/kaerunefnd-utbodsmala/ Netfang kærunefndar útboðsmála er knu@yfirskattanefnd
Síða 1/1

Verknúmer:

Útboðsnúmer: 250048

Dagsetning ákvörðunar: 19.6.2025