ÚTBOÐ – Skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um málun
Örútboð nr. 264 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara
Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.
Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar.
Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 25. október 2018 kl. 14.00.